Bragginn í Öxarfirði er í 26 km fjarlægð frá Þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum og Ásbyrgi.
Hann er stúdíó og sýningaraðstaða Ystar.
Bragginn, sem er af amerískri gerð var byggður árið 1964 sem útigöngufjárhús og hlaða og notaður sem slíkur þar til endurbygging hófst aldamótaárið 2000. Hann hefur staðist jarðskjálfta uppá amk 6,2 á Richter og fé sem þar gekk var að jafnaði hraust og þreifst vel.
Sýningar hafa verið árlegur viðburður í Bragganum frá 2004, ætíð á svipuðum tíma, eða um sumarsólstöður: síðustu vikuna í júní og fyrstu vikuna í júlí ásamt aðliggjandi helgum. Opnunartími alla daga jafnt; frá 11-18.
Braggasýningar:
"Sjálfsmyndir" ásamt með Súpunni 2009
"Sagt í lit"
"Teikningar"
"Tilraunir - Tvenndarleikir"
"Yst fyrst fryst ... svo ?"
"Yst sem innst"
"María Mey " ásamt með Súpunni
2009
2009
2008
2007
2006
2005
2004